SA Víkingar Íslandsmeistarar

SA Víkingar höfðu ástæðu til að fagna í gær. Mynd/Ásgrímur Ágústsson.
SA Víkingar höfðu ástæðu til að fagna í gær. Mynd/Ásgrímur Ágústsson.

SA Víkingar frá Akureyri eru Íslandsmeistarar í íshokkí karla eftir 5-3 sigur gegn Birninum í gærkvöld á heimavelli. SA vann einvígið 3-0 en þetta er sautjándi Íslandsmeistaratitill liðsins. Leikurinn í gær var æsispennandi en heimamenn sigu framúr á lokasprettinum. Ben DoMarco skoraði tvö mörk fyrir SA og þeir Jóhann Már Leifsson, Jón B. Gíslason og Sigurður Reynisson eitt mark hver. Mörk Bjarnarins skoruðu þeir Bóas Gunnarsson, Ólafur Björnsson og Thomas Nielsen.

Nýjast