Kvennalið Skautafélags Akureyrar tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí sl. helgi með sigri gegn Birninum á heimavelli, 8-1, í úrslitaleik. Þetta er sjöundi Íslandsmeistaratitill SA í röð, en félagið hefur unnið í tólf af þeim fjórtán skiptum sem keppt hefur verið um titilinn.