SA Víkingar tryggðu sér deildarmeistaratitilinn á Íslandsmóti karla í íshokkí er liðið sigraði Björninn, 4-3, í Egilshöllinni sl. helgi. SA vann sér inn heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni í leiðinn þar sem þessi tvö lið heyja baráttu um Íslandsmeistaratitilinn. Úrslitakeppnin hefst um miðjan mánuðinn og Björninn ríkjandi meistari.