Þetta er mjög fjölbreytt og skemmtilegt starf. Ég er sjálf mikil áhugamanneskja um menningu og þar af leiðandi á vinnan vel við mig, segir Hulda Sif Hermannsdóttir hjá Akureyrarstofu.
Hulda hefur umsjón með viðburðum og menningarmálum bæjarins og þeir eru fjölmargir menningarviðburðirnir á Akureyri sem Hulda kemur að með einum eða öðrum hætti.
Ég reyni að sækja sem flesta menningarviðburði í bænum og það geri ég ekki af eintómri skyldu, heldur langar mig til þess að fara. Menning er eitt af mínum helstu áhugamálum og það er sama hvort það er leikhús, tónleikar eða myndlistarsýning, mér finnst þetta allt gefandi, forvitnilegt og skemmtilegt. Ég á mjög erfitt með að ímynda mér lífið án menningar, segir Hulda.
Ferðamaður í heimabyggð
Heimamenn ættu að taka einn til tvo daga á sumrin og upplifa sig sem ferðamenn í bænum. Heimsækja staði eins og t.d. Davíðshús og Sigurhæðir. Það er fullt af perlum hérna á Akureyri sem við íbúar bæjarins látum framhjá okkur fara. Ég held að það sé nokkuð algengt að fólk sæki lítið þessa staði í eigin samfélagi og ég hvet Akureyringa og nágranna okkar til að nýta sér þessar perlur sem við höfum upp á að bjóða.
Rússneskan heillar
Ég byrjaði að læra rússnesku á sínum tíma og ætla mér að klára það nám einn daginn. Mér finnst það mjög fallegt tungumál en það er erfitt og ég hafði ekki agann á sínum tíma til læra málið. En ég held að aginn sé mögulega kominn aftur, segir Hulda og hlær. Ég hef nýtt þýskunámið í mínu starfi hjá Akureyrarstofu og öll tungumálakunnátta mun koma sér vel.
Nánar er rætt við Huldu Sif í prentútgáfu Vikudags