Rúnar Steingrímsson og Ragnar Sverrisson kjörnir heiðursfélagar Þórs

Heiðursmenn Rúnar Steingrímsson og Ragnar  Sverrisson         Mynd thorsport.is
Heiðursmenn Rúnar Steingrímsson og Ragnar Sverrisson Mynd thorsport.is

Íþróttafélagið Þór varð 110 ára á dögunum og í tilefni þess var boðið í samsætis i Hamri félagsheimili Þórsara. Við það tilefni voru tveir eðal Þórsarar, þeir Rúnar Steingrímsson og Ragnar Sverrisson útnefndir sem heiðursfélagar. Við sama tilefni var fjöldi Þórsara sæmdur gull-, silfur- og bronsmerki félagsins.

Í umsögn um þá félaga Rúnar og Ragnar segir:

,,Rúnar Steingrímsson - „Maðurinn á bak við tjöldin“

Rúnar Steingrímsson þarf vart að kynna fyrir nokkrum manni, sem komið hefur að íþróttum síðustu áratugina. Rúnar stundaði íþróttir á sínum yngri árum og fór alla leið upp í meistaraflokk í þeim báðum en vegna þrálátra meiðsla neyddist hann til að leggja skóna á hilluna. Rúnar fór ekki langt frá knattspyrnunni eftir meiðslin því hann reimaði á sig takkaskó, sem hentuðu dómara og hengdi dómaraflautu um háls sér og hóf farsælan feril, sem knattspyrnudómari og var þar um langt skeið í fremstu röð. Það þótti honum afbragðsleið til að halda tengslum við íþróttina og vera í góðum félagsskap, eins og hann komst að orði í viðtali við Skapta Hallgrímsson hjá Morgunblaðinu 27. febrúar 1999.

Rúnar hefur verið og er enn afar dug mikill í félagsmálum hjá Þór og síðast enn ekki síst afar öflugur sjálfboðaliði. Hefur til fjölda ára sinnt hlutverki, sem gæslumaður á knattspyrnu- og körfuboltaleikjum. Á körfuboltaleikjum er hann hluti af stóru og kraftmiklu gengi, sem sér um að umgjörð og frágangur fyrir og eftir körfuboltaleiki þar er séð til þess að allt sé upp á 10. Þá hefur hann í áraraðir verið hluti af gengi góðra manna, sem keyra körfuboltaliðin og knattspyrnuliðin okkar í útileiki. Þegar kemur að vinnuverkefnum hvers konar þá er Rúnar fyrstur til að mæta en hann fer ekki fyrstur heim svo mikið er víst.

Rúnar er góð fyrirmynd hinna fjölmörgu sjálfboðaliða og hvatning allra, sem vilja leggja sitt af mörkum við að gera sínu félagi vel og um leið samfélaginu öllu. Rúnari hefur áður verið veitt silfur og gullmerki Þórs 95 ára afmæli Þórs 2010 var honum veitt silfurmerki KSÍ. Rúnar er einn fjölmargra „Maðurinn á bak við tjöldin“

Ragnar Sverrisson - Stórkaupmaður og Þórsari

Ragnar Sverrisson kaupmaður og stór Þórsari er maður, sem hefur ávallt látið verkin tala og við þá iðju hefur hann látið hendur standa fram úr ermum. Í ár eru um 70 ár síðan hann gerðist félagi í Þór, annað kom ekki til greina enda allt hans fólk sannir Þórsarar. Sem, barn voru hverskyns knattleikir hans og félaga á Eyrinni daglegt brauð. En snemma varð handboltinn hans yndi en þá íþrótt stundaði hann af mikilli eljusemi og fór alla leið upp í meistaraflokk þar, sem sú göfuga íþrótt var stunduð í Rafveitu-skemmunni og síðar í íþrótta-skemmunni. Raggi var m.a. einn þeirra, sem skipuðu lið Þórs sem ávann sér rétt til keppni í 1. deild karla fyrst liða á Akureyri.

Þegar synir Ragga fóru að stunda iðkun skíðaíþróttarinnar þá varð fjallið hans annað heimili. Þar var hann með mörgum góðum köppum við vinnu við allt sem viðkom æfinga og keppni hjá Akureyskum ungmennum. Þar var hann í góðum hópi manna m.a. Þórsaranum Jóhanni Haukssyni og KA manninum Óðni Árnasyni. Einnig var Raggi var duglegur að fylgja drengjunum sínum eftir á þeirra knattspyrnuferli í unglingastarfi félagsins.

Þegar Þór flutti í Þorpið og settist að á þeim stað, sem félagið hefur nú fest rætur vann hann dag og nótt með fjölda sjálfboðaliða við að koma svæðinu í nothæft horf. Seint á áttunda áratug síðustu aldar þ.e.a.s. 1987 hófst bygging Hamars og Raggi spilaði þar stórt hlutverk við þær framkvæmdir. Hann sá m.a. um að þegar múrarar voru að verki við múrhúðun eða renna í gólf sá Raggi um að aldrei yrði bið á næstu hræru, engin mátti vera aðgerðarlaus lengi.

Eftir að Hamar var byggður eða í kringum 1990 fannst Ragnari sem að íþróttafólki Þórs væri ekki gert nógu hátt undir höfði við val á íþróttafólki Þórs, sem því miður hafði ekki verið með reglulegum hætti. Þá tók okkar maður til sinna ráða og setti á fót nefnd sem skildi framvegis gera hlutina með sómasamlegum hætti. Raggi keypti stóran farandbikar handa íþróttamanni Þórs og eignarbikara fyrir íþróttafólks hverra deildar. Síðan hefur besta íþróttafólks hverju sinni verið heiðrað með þessum hætti með aðkomu Ragga.

17 gullmerki afhent

Sautján Þórsurum var veitt gullmerki Íþróttafélagsins Þórs á athöfninni. Það eru þau, Anna Lilja Sævarsdóttir, Árni Páll Halldórsson, Baldvin H. Sigurðsson, Bjarni Sigurðsson, Guðmundur Benediktsson, Haraldur Ólafsson, John Júlíus Cariglia, Jónas Leifur Sigursteinsson, Jón Stefán Jónsson, Sigurður Grétar Sigurðsson, Sigurpáll Árni Aðalsteinsson, Sigursteinn Kristinsson, Sólrún Tryggvadóttir, Stefán Rögnvaldsson, Svanberg Snorrason, Svava Gunnarsdóttir og Sveinn Guðmundsson.

Átta fengu silfurmerki

Átta Þórsurum voru veitt silfurmerki en það voru þau, Björk Viðarsdóttir, Dóra Sif Sigtryggsdóttir, Guðjón Andri Gylfason, Reimar Helgason, Rúnar Hermannsson, Sigríður Pálsdóttir, Sveinn Elías Jónsson og Viðar Valdimarsson.

Sjötíu fengu bronsmerki

Stór hópur Þórsara fengu bronsmerki á afmælinu en hér að neðan má sjá lista yfir það góða fólk en listinn er í stafrófsröð.

Aðalgeir Axelsson, Alfreð Leó Svansson, Andri Þór Bjarnason, Arnór Þorri Þorsteinsson, Aron Birkir Stefánsson, Álfheiður Sigurðardóttir, Ásgeir Þór Ásgeirsson, Benedikt Ármannsson, Birgir Þór Karlsson, Bjarni Þór Hólmsteinsson, Björgvin Helgi Valdimarsson, Björn Heiðar Rúnarsson, Bojana Besic, Brynjar Hólm Grétarsson, Brynjar Hreinsson, Davíð Örn Oddsson, Einar Gauti Helgason, Einar Kristinn Brynjólfsson, Elias Marjala, Elías Kristjánsson, Elmar Freyr Aðalheiðarson, Eva Wiium, Fjalar Úlfarsson, Guðjón Andri Gylfason, Guðmundur Konráðsson, Gunnar Arason, Halldór Árnason, Halldór Yngvi Jónsson, Halldóra Hauksdóttir, Harpa Jóhannsdóttir, Heiðdís Rósa Sigurjónsdóttir, Hermann Helgi Rúnarsson, Hilmir Kristjánsson, Hrafnhildur Sigurgeirsdóttir , Hreinn Viðar Gunnlaugsson, Hulda Björg Hannesdóttir, Hulda Ósk Jónsdóttir, Höskuldur Stefánsson, Ingi Þór Stefánsson, Jason Orri Geirsson, Jóhann Þórhallsson, Jörgen Sigurðsson , Karen María Sigurgeirsdóttir, Kristín Elva Viðarsdóttir , Kristján Valur Kristjánsson, Margrét Árnadóttir, Marta María Kristjánsdóttir, Matthías Örn Friðriksson, Oddur Grétarsson, Orri Sigurjónsson, Ottó Hólm Reynisson, Óðinn Valsson, Ólafur Þór Hjaltalín, Ólafur Örn Torfason, Óskar Jónasson, Páll Þorgeir Pálsson, Ragnar Hauksson, Rakel Óla Sigmundsdóttir , Rúnar Hermannsson, Sigríður Pálsdóttir, Sigurður Óli Jónsson, Sigurður Þengilsson, Smári Jónsson, Stefán Máni Unnarsson, Sveinn Orri Vatnsdal, Sævar Lárus Áskelsson, Tómas Sævarsson, Viktor Ernir Geirsson, Þórey Stefánsdóttir, Þórólfur Sveinsson.

Frá þessu segir á heimasíðu félagsins thorsport.is

Nýjast