Rúmum hefur fjölgað um 500 á fimm árum

Alls eru 3.175 rúm á hótelum og gistiheimilum á Norðurlandi eystra í samtals 1.466 herbergjum. Þetta kemur fram í samantekt Hagstofu Íslands.

Árið 2008 voru hótel og gistiheimili á Norðurlandi eystra 49, en í fyrra voru þau 59 talsins.

Fjöldi hefbergja fór á þessu fimm ára tímabili úr 1.246 í 1.466.

Fjöldi rúma fór úr 2.671 í 3.175 á sama tímabili. Þeim hefur því fjölgað um 504 á fimm árum.

Gistinóttum hefur sömuleiðis fjölgað verulega. Árið 2008 voru gistinæturnar liðlega 210 þúsund, en í fyrra um 264 þúsund.

Hver gestur gistir að jafnaði í tvær nætur.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast