Rúmlega 100 hlutafélög og einkahlutafélög stofnuð í fyrra

Alls voru skráð 104 ný hlutafélög og einkahlutafélög á Norðurlandi eystra í fyrra, sem er svipaður fjöldi og árið á undan. Flest félög voru stofnuð með lögheimili á Akureyri , 60 talsins. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu Íslands.

Flest félögin voru stofnuð vegna leigu á atvinnuhúsnæði, þar á eftir kemur útgerð smábáta. Nokkur félög voru einnig skráð venga ferðaþjónustu á síðasta ári. 

karleskil@vikudagur.is

Nýjast