Yfir 700 þúsund krónur söfnuðust á viðburðinum Mömmur og möffins sem fram fór á Akureyri um helgina á hátíðinni Ein með öllu. Upphæðin rennur beint til fæðingadeildar Sjúkrahússins á Akureyri. Yfir 2000 möffins seldust í Lystigarðinum og vakti viðburðurinn mikla lukku. Þá söfnuðust 350 þúsund krónur á viðburðinum Pabbar og pizzur en það var nýr dagskrárliður á hátíðinni. Upphæðin rennur til Krabbameinsfélags Akureyrar og er stefnt að því að þetta verði árlegur viðburður.