Ákveðið hefur verið að rukka fyrir notkun á gönguskíðabrautinni í Hlíðarfjalli, en til þessa hefur það ekki verið gert. Einn dagur í brautinni mun kosta 500 krónur og vetrarkortið 10.000 krónur. Í fréttatilkynningu frá Akureyrarbæ segir Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður skíðasvæðisins að þessi ráðstöfun sé óhjákvæmileg í ljósi þess kostnaðar sem til fellur.
Gjaldskrár í brekkur Hlíðarfjalls hækkuðu í haust, þannig hækkaði árskortið um fimmtung.