Ritstjóri Akureyrar vikublaðs sýknaður

Björn Þorláksson
Björn Þorláksson

Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur úrskurðað að Björn Þorláksson, ritstjóri Akureyrar vikublaðs, hafi ekki brotið siðareglur félagsins með frétt sem bar fyrirsögnina „Sýnkaður af níði passar börn“. Fréttin birtist í blaðinu um miðjan janúar og kærði maðurinn sem fjallað er um í fréttinni málið til siðanefndarinnar.

Kærandinn telur að birting fréttarinnar, sem unnin sé eftir nafnlausri ábendingu, hafi ekki þjónað almannahagsmunum og framsetninguna megi jafna við nafnbirtingu. Við vinnslu fréttarinnar hafi blaðamaðurinn ekki reynt að hafa samband við kæranda til þess að koma á framfæri sjónarmiðum sínum. Þá sé skaðinn ekki einungis kæranda, heldur einnig meints fórnarlambs og allra þeirra sem standa kæranda næst.

Kærandi er ekki nafngreindur í fréttinni og siðanefnd fellst ekki á að birtingu fréttarinnar megi jafna við nafnbirtingu.

Siðanefndin segir ekki verða annað séð en að fréttin byggi á traustum heimildum enda liggi ekki annað fyrir en að hún sé efnislega rétt. „Við vinnslu fréttarinnar leitaði blaðamaður staðfestingar hjá Akureyrarbæ á því að fréttin væri efnislega rétt, að einstaklingur, sem sýknaður hefði verið af ákæru um kynferðisbrot gegn barni, starfaði við daggæslu þar í bæ,“ segir í úrskurði siðanefndar.

„Kærði, Björn Þorláksson, telst ekki hafa brotið gegn siðareglum við umfjöllun sína undir fyrirsögninni „Sýknaður af níði passar börn“, sem birtist á vefnum akureyrivikublað.is 17. janúar 2013 og í vikublaðinu Akureyri 18. janúar.“

karleskil@vikudagur.is

 

 

Nýjast