Rannsóknar- og nýsköpunarhúsið Borgir á Akureyri var tekið í notkun í lok ársins 2004. Fasteignir ríkisins leigja Borgir af fasteignafélaginu Reitum og er samningurinn til 25 ára. Fasteignir ríkisins framleigja síðan húsnæðið. Helstu leigutakar hafa nú sagt upp leigusamningum sínum, svo sem Matís, Náttúrufræðistofnun Íslands og Háskólinn á Akureyri. Skólinn segir ekki upp öllum leigusamningum. Jón Gunnar Ottósson forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands segir að samningnum hafi verið sagt upp vegna mjög hárrar húsaleigu. Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur um árabil leigt húsnæði að Borgum, en er nú að flytja starfsemina í miðbæ Akureyrar.
Þetta er náttúrulega galin staða, opinberar stofnanir eru að segja upp leigusamningum við sjálft ríkið og leigja hugsanlega húsnæði af öðrum. Í staðinn stendur húsnæðið autt og ríkið þarf samt sem áður að greiða leigu, sagði forstöðumaður opinberrar stofnunar, sem ekki vildi tjá sig opinberlega um málið.
Nánar um þetta í prentútgáfu Vikudags