Rekstur Hlíðarskóla á Akureyri kostar á þessu ári tæpar 90 milljónir króna. Framlag ríkisins til skólans á þessu ári er aðeins 12 milljónir en við reiknuðum með 40 milljónum. Í viðræðum við fjárlaganefnd og ráðuneyti var unnið út frá 40 milljónum, en niðurstaðan varð allt önnur. Við erum auðvitað ekki sátt við þessa niðurstöðu og teljum að sveitarfélögum sé verulega mismunað, segir Preben Jón Pétursson formaður skólanefndar Akureyrarbæjar um fjárframlög ríkisins til reksturs skólans. Um 40 nemendur á grunnskólaaldri nýta sér að jafnaði þjónustu Hlíðarskóla en hann er hugsaður sem skammtímaúrræði fyrir þá nemendur sem af einhverjum ástæðum aðlagast ekki starfinu í heimaskóla sínum. Brúarskóli í Reykavík og Hlíðarskóli gegna sambærilegu hlutverki, en ríkið styrkir Brúarskóla hlutfallslega mun betur. Við viljum einfaldlega að jafnræðis sé gætt og höfum því farið fram á að ríkið sinni hlutverki sínu og komi að rekstri Hlíðarskóla með sama hætti. Við höfum ítrekað átt fundi með fjárlaganefnd og ráðuneytum, en án árangurs til þessa. Ég hreinlega trúi ekki öðru en að þetta verið leiðrétt. segir Preben Jón.
Nánar um þetta í prentútgáfu Vikudags
karleskil@vikudagur.is