ÁTVR hefur ákveðið að stækka Vínbúðina við Hólabraut á Akureyri, en fyrir liggur samþykki bæjaryfirvalda um að stækka húsnæðið til austurs. ÁTVR frestaði í fyrra áformum um stækkun, en margir nágrannar verslunarinnar voru þá mjög andvígir stækkuninni. Sigrún Ósk Sigurðardóttir aðstoðarforstjóri ÁTVR segir nauðsynlegt að byggja við húsnæðið.
Það er ekki búið að tímasetja nákvæmlega hvenær framkvæmdir hefjast, en ég býst við að það verði með haustinu. Með stærra húsnæði getum við veitt betri þjónustu, meðal annars aukið vöruúrvalið, segir Sigrún Ósk.
Húsnæðið verður stækkað um 115 fermetra að grunnfleti.
karleskil@vikudagur.is