Í dag verður austlæg átt á Norðurlandi eystra, 8-13 m/sek fram eftir morgni, annars suðlæg átt, 5-10 m/s. Rigning eða slydda en lítilsháttar snjókoma í kvöld. Suðlæg átt, 3-8 og stöku él á morgun en hvessir og bætir í ofankomu síðdegis. Hiti 0 til 5 stig yfir daginn.
Allir helstu vegir eru færir, samkvæmt vef Veðurstofunnar. Snjóþekja og ofankoma er á Öxnadalsheiði og víða þaðan allt austur á Mývatn.