Rausnarleg gjöf frá nemendum Síðuskóla til barnadeildar SAk

Nemendur Síðuskóla gerðu það heldur betur gott.   Myndir sak.is
Nemendur Síðuskóla gerðu það heldur betur gott. Myndir sak.is
Barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri fékk á dögunum einstaka gjöf þegar nemendur í 5., 6. og 7. bekk Síðuskóla ákváðu að leggja 550.000 krónur inn á styrktarreikning deildarinnar. Upphæðin safnaðist með sölu á handverki og veitingum sem nemendur stóðu fyrir á Barnamenningarhátíð í apríl.
 
Við afhendinguna, sem fór fram í skólanum 2. júní, tók Elma Rún Ingvarsdóttir, sérfræðingur í barnahjúkrun á SAk, á móti gjöfinni. Hún segir það alltaf jafn dýrmætt þegar samfélagið styður við deildina – og sérstaklega þegar það kemur frá börnum sjálfum: „Það var ótrúlega hlýlegt og fallegt að fá þessa stóru gjöf frá nemendum í Síðuskóla. Ég þakkaði þeim kærlega fyrir hönd Barnadeildarinnar og sagði þeim að því miður þyrftu börn stundum að dvelja inni á sjúkrahúsi – og þá viljum við að þeim líði sem best,“ segir Elma Rún og bætir við
„Við ætlum að nota styrkinn til að kaupa Lazyboy stóla inn á stofur barnanna. Þeir nýtast bæði börnum og foreldrum þegar þau dvelja hjá okkur – sérstaklega þegar börn þurfa að vera í einangrun og eru föst inni á stofu. Þá skiptir miklu máli að geta haft það notalegt, hvort sem er til að kúra, lesa eða hvílast.“
 
Að sögn Elmu Rúnar skiptir samfélagslegur stuðningur sköpum í starfi deildarinnar: „Án samfélagsins væri Barnadeildin ekki eins vel útbúin og við viljum að hún sé. Við höfum verið svo heppin að njóta frábærs stuðnings í gegnum tíðina – og þessi gjöf frá börnum í Síðuskóla er dásamlegt dæmi um það.“
 
Á sviðinu við afhendinguna stóðu fulltrúar bekkjanna þriggja ásamt Hafdísi Maríu Tryggvadóttur kennara. Með gjöfinni fylgdi fallegt kort þar sem stóð:
„Kæra Barnadeild, í dag 2. júní leggjum við inn á styrktarreikning SAk 550.000 kr. Okkur í 5., 6. og 7. bekk Síðuskóla tókst að safna þessu með sölu á munum og kaffi á Barnamenningarhátíð í apríl. Við vonum að peningurinn nýtist ykkur vel. Kveðja, 5., 6. og 7. bekkur Síðuskóla.“
 
 
Sjúkrahúsið á Akureyri þakkar nemendum og starfsfólki Síðuskóla kærlega fyrir dýrmætan stuðning og hlýhug

 

Frá þessu segir á heimasíðu SAk.

Nýjast