Um hvað ætlar þú að kjósa í vor? Hvaða málefni skipta þig máli í daglegu lífi sem Akureyringur? Hvernig tekur þú afstöðu til einstaklinga og stjórnmálaflokka sem þú hefur um að velja í kosningum i vor? Sem kjósandi ertu örugglega að hugsa mál þitt og ég sem frambjóðandi er að leita leiða til að koma á framfæri því sem ég og minn flokkur stendur fyrir.
Stærsti hluti af rekstri bæjarins fer í að tryggja grunnþjónustu m.a. í leik- og grunnskólum. Þetta eru málaflokkar sem snerta okkar daglega líf og ég sem verðandi bæjarfulltrúi þarf að vinna að með hagsmuni þína að leiðarljósi. Ég vil standa með þeim grunngildum Samfylkingarinnar sem eru jöfnuður og jöfn tækifæri okkar allra. Þessi grunngildi verða mitt leiðarljós sem verðandi bæjarfulltrúi. Þá hef ég í starfi mínu sem aðstoðarskólameistari í VMA öðlast dýrmæta reynslu með ungu fólki sem ég vil geta nýtt áfram inn í bæjarmálin.
Eflum fagmennsku kennara og starfsaðstæðum í skólum
Raunverulegu málin sem skipta þig og þína fjölskyldu máli hef ég nokkra reynslu af, sumu meira, öðrum minna. Ég þekki það sem móðir að sjá gleðina hjá börnunum mínum þegar þau hafa komið heim með lítinn hlut sem þau gerðu á leikskólanum, gleðina yfir því að hafa lært að skrifa stafinn minn og ég hef séð öryggið sem þau hafa fundið hjá starfsfólki leikskólans. Ég hef setið fundi með kennurum í grunnskólanum þar sem faglega hefur verið tekið á námi barna minna, félagsþroska þeirra og möguleikum til að vaxa og dafna. Ég hef séð hvernig kennarar og hafa mótað börnin mín og mig sem foreldri. Það er raunverulegt mál að berjast fyrir því að efla og hlúa að því umhverfi sem börnin okkar eru í á hverjum degi. Starfsfólk í skólum hefur fengið nóg af niðurskurði síðustu ára þannig að það er að þrotum komið í sumum tilfellum. Það er ekki lengur nóg að segja við fagfólk í skólum að það sé að standa sig svo rosalega vel í erfiðum aðstæðum. Við verðum að fara að efla innra starf og gefa börnum okkar tækifæri til að eflast áfram í faglegu og öruggu umhverfi skólanna.
Styrkleikana inn í orðræðuna
Orðræða í stjórnmálum skiptir mjög miklu máli, hvað orð við notum um hlutina og hvernig mál eru sett fram. Hlutverk fjölmiðla er stórt í allri orðræðu og finnst mér stundum með ólíkindum hvaða mál komast á dagskrá fjölmiðla og stjórnmála. Við getum stundum eytt miklum tíma í umræðu um mál sem skipta okkur ekkert svo miklu máli dags daglega. Skólamál og málefni barna og ungs fólks hafa oft verið kölluð mjúku málin. Reynsla mín er sú að þetta eru alls ekki nein mjúk mál. Þetta eru erfið mál sem nísta mann stundum inn að beini og geta verið afar slítandi og tímafrek. Það eru ekki alltaf tilbúnar áætlanir sem hægt er að fara eftir, enginn slagorð sem virka, engin loforð sem virka það sem skitpir máli er að sá aðili sem sinnir þér geti sett sig í þín spor og hjálpað þér að efla styrkleika þína. Þessi aðili verður að hafa skilning á þeirri stöðu sem þú ert í og vinnuaðstæður viðkomandi þurfa að vera þannig að hægt sé að vinna með þér. Ég og félagar mínir í Samfylkingunni erum tilbúin til að fara í þessa vegferð og láta raunverulegu málin skipta máli fyrir Akureyringa.
Sigríður Huld Jónsdóttir.
Sigríður Huld er aðstoðarskólameistari VMA og skipar 2. sætið á lista Samfylkingarnnar fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor.