Raunávöxtun Stapa 5,3 % í fyrra

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs hefur staðfest ársreikning sjóðsins fyrir árið 2012. Nafnávöxtun Tryggingadeildar sjóðsins á árinu var 10,1% og raunávöxtun 5,3%.
Alls greiddu 18.505 sjóðfélagar hjá 2.609 launagreiðendum iðgjöld til deildarinnar á árinu og námu iðgjöldin 5,9 milljarða króna og hækkuðu um 7,3% frá fyrra ári.  Lífeyrisgreiðslur deildarinnar námu 3,4 milljörðum króna og hækkuðu um 5,1% frá fyrra ári.
Séreignadeild sjóðsins býður upp á þrjár ávöxtunarleiðir, með mismunandi áhættu, Safn I, Safn II og Safn III.  Ávöxtun allra leiða gekk vel og var raunávöxtun þeirra 4,1%, 6,1% og 2,5% á árinu 2012.
Heildareignir sjóðsins námu  131,7 milljörðum króna og hækkuðu um 14,5 milljarða frá fyrra ári eða um 12,4%

Nýjast