Sigurkarl Aðalsteinsson, eða Siddi rakari eins og margir þekkja hann, er einn sigursælasti vaxtarræktarkappi okkar Íslendinga. Siddi er margfaldur Íslandsmeistari og hefur einnig náð góðum árangri á alþjóðlegum mótum. Hann keppti nýlega á Evrópumótinu á Spáni þar sem hann hafnaði í fimmta sæti. Auk þess að starfa sem rakari hefur Siddi einnig sinnt leiðsögustörfum og var í fyrsta hópnum sem útskrifaðist á dögunum úr leiðsögunámi á vegum Símenntunar við Háskólann á Akureyri. Siddi segist ávallt hafa heillast af náttúrufegurð landsins og stefnir á frekari störf sem leiðsögumaður.
Ítarlegt viðtal er við Sidda í prentútgáfu Vikudags þar sem hann ræðir m.a. um ferilinn í vaxtarræktinni, mataræði og störf rakarans og leiðsögumannsins.