Ragnar Hólm sýnir vatnslitamyndir

Baula
Baula
 Ragnar Hólm Ragnarsson hefur opnað sýningu á nýjum og nýlegum vatnslitamyndum í Gallerí LAK á Læknastofum Akureyrar. Ragnar Hólm fæddist á Akureyri 1962. Hann hefur fiktað með liti frá barnæsku en málað af ástríðu síðustu árin, sótt ýmis myndlistarnámskeið og notið handleiðslu Guðmundar Ármanns Sigurjónssonar myndlistarmanns í meðferð vatnslita.
 
Þetta er þriðja einkasýning Ragnars. Hann tileinkar hana  5 ára dóttur sinni og 150 ára heimabæ sínum. Sjálfur fagnar Ragnar 50 ára afmæli í nóvember. Yfirskrift sýningarinnar er 5/50/150. Gallerý LAK er á Læknastofum Akureyrar, Hafnarstræti 97, á 6. hæð. Allir eru velkomnir.

Nýjast