Síðustu daga hefur Landsnet þurft að skerða afhendingu rafmagns til nærri allra kaupenda svokallaðrar skerðanlegrar raforku á Norður- og Austurlandi og er allt útlit fyrir að það ástand muni vara áfram í þessum landshlutum næstu vikurnar. Ástæðan er lélegur vatnsbúskapur stærstu vatnsaflsvirkjana í landshlutunum og takmörkuð flutningsgeta Byggðalínu til að flytja rafmagn frá Suðvesturlandi til Norðausturlands.
Lág vatnsstaða í lónum stærstu vatnsaflsvirkjananna fyrir norðan og austan er ástæða þess að nær allir notendur skerðanlegrar raforku á Norður- og Austurlandi hafa frá aðfararnótt síðastliðins mánudags, 6. maí, þurft að sætta sig við skerðingu á afhendingu rafmagns. Áfram er búist við lélegum vatnsbúskap í þessum landshlutum þar sem ekki er útlit fyrir leysingu og snjóbráðnun að nokkru marki á næstunni. Því gerir Landsnet áfram ráð fyrir skerðingum á næstu vikum til kaupenda á skerðanlegrum flutningi raforku. Helstu notendur skerðanlegs flutnings eru rafhitaveitur og iðnfyrirtæki.