Rætt um að fjölga orlofshúsum

Illugastðir/mynd Ásgrímur Ingi
Illugastðir/mynd Ásgrímur Ingi

„Við höfum yfir að ráða nægu landrými til að fjölga orlofshúsum og höfum þess vegna hafið vinnu við að skipuleggja svæðið, með það fyrir augum að á svæðinu verði hægt að fjölga húsum,“ segir Hákon Hákonarson stjórnarformaður Illugastaða í Fnjóskadal.

Liðlega þrjátíu orlofshús eru á Illugastöðum og segir Hákon að margir aðilar hafi þegar lýst yfir áhuga á að eiga og reka þar hús. Hann segir að tilkoma Vaðlaheiðarganga styrki svæðið.

„Ef allt gengur samkvæmt áætlum, getum við kynnt nýtt deiliskipulag í haust. Það er hægur vandi að fjölga orlofshúsum á Illugastöðum um helming," segir Hákon Hákonarson.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast