Ráðist var á þingmanninn Sigmund Erni Rúnarsson á Akureyri aðfaranótt sunnudagsins sl. Í samtali við fréttavef DV segir Sigmundur að drukkinn maður í miklu ójafnvægi hafi veist að sér er hann var staddur á ljóðahátíð hjá Ljóðaklúbbnum Akureyrska Populus Tremula. Ekki er vitað hvað maðurinn átti sökótt við þingmanninn. Sérsveitarmaður sem var á staðnum yfirbugaði ofbeldismanninn á svipstundu og kom þannig þingmanninum til bjargar.
Það er full ástæða til að þakka honum fyrir þau skjótu viðbrögð, segir Sigmundur þakklátur í samtali við DV