Ráðhústorg fær andlitslyftingu

Starfsmenn Garðvíkur slaka á eftir að síðasta grasþakan var sett niður. Myndir/Aðsendar.
Starfsmenn Garðvíkur slaka á eftir að síðasta grasþakan var sett niður. Myndir/Aðsendar.

Greinin birtist fyrst Vikublaðinu sem kom út á fimmtudag.

Undanfarnar vikur hafa framkvæmdir staðið yfir á Ráhústorgi á Akureyri. Um töluverða andlitslyftingu er að ræða fyrir þetta hjarta miðbæjarins. Hönnuður framkvæmdanna er Teiknistofa Norðurlands og Arnar Birgir Ólafsson, landslagsarkitekt en Garðvík ehf. á Húsavík hefur annast verkið.

Garðvík ehf. hefur í mörg ár boðið upp á fjölbreytta þjónustu í skrúðgarðyrkju, þar á meðal hönnun og skipulag garða og nýframkvæmdir. Fyrirtækið hefur getið sér gott orð fyrir fagmennsku á Húsavík og austur á Langanes.

Guðmundur Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Garðvíkur segir í samtali við Vikublaðið að Akureyringar eigi hrós skilið fyrir hversu mikið þeir hafa lagt í ásýnd miðbæjarins.

Sannkölluð bæjarprýði

„Akureyrarbær ákvað að gera svolitla andlitslyftingu á Ráðhústorgi og Garðvík var fengið til verksins eftir m.a. ábendingar frá hönnuði. Okkar verkþáttur hófst 22. maí og verklok voru 10. Júní,“ segir Guðmundur og bætir við að nú takið aðrir við og svæðið verði sannkölluð bæjarprýði.

„Það er ýmislegt fleira sem á eftir að gera við torgið. Það verða sett upp borð, bekkir og ýmislegt annað til að laða fólk að svæðinu,“ segir Guðmundur jafnframt en megin markmið framkvæmdanna sé að gera Ráðhústorg að dvalarsvæði fólks. „Framkvæmdin sem er verið að gera núna er fyrst og fremst að gera torgið vistvænt og aðlaðandi,“ bætir hann við.

Kuldatíð ekki valdið töfum

Guðmundur segir að framkvæmdir hafi gengið vel þrátt fyrri norðanhret í júní en fyrirtækið hefur verið með 3-5 starfsmenn á verktímanum. „Verkstjóri er Martin Babcan sem er búinn að vera verkstjóri hjá okkur í 9 ár,“ segir Guðmundur.

Næsti verkþáttur er smíði á borðum og bekkjum og breytingar á eldri setbekkjum, Stálx á Akureyri sem annast það. „Sá aðili kemur inn eftir ábendingu frá viðhaldsstjóra lokavöru hjá PccBakki Silicon,“ segir Guðmundur og leggur ekki dul mikilvægi PCC í að skapa afleidd störf í nærumhverfinu.

Auka umsvif sín á Akureyri

„Við ákváðum að leita inn á markaðinn á Eyjafjarðarsvæðinu eftir að við misstum okkar langstærsta viðskiptavin sem var PCC. Hér er fyrirsjáanlegur samdráttur á svæðinu eftir að þeir tilkynntu um lokun en það er mikill skellur fyrir samfélagið,“ segir Guðmundur.

Þá segir Guðmundur að víða sé mikill skortur á fagmenntuðu fólki í faginu. Það hafi opnað dyrnar inn á markaðinn í höfuðstað Norðurlands.

„Já, það er skortur á fagmenntuðum garðyrkjumönnum á Eyjafjarðarsvæðinu eins víðar en það er mikill vilji hjá Akureyrarbæ til þess að fá menn með fagmenntun á þessu sviði. Það er afskaplega ánægjulegt,“ segir hann en einn af starfsmönnum hans er að ljúka námi í skrúðgarðyrkju og er hann jafnframt sá yngsti á landinu til að gera það.

„Það er gaman að geta þess að einn af þeim sem kom að verkinu er Friðrik Aðalgeir Guðmundsson sem er langyngsti fagmenntaði garðyrkjumaður landsins, aðeins 19 ára gamall. Hann mun ljúka námi í Garðyrkjuskólanum á Reykjum á næsta ári,“ útskýrir Guðmundur og bætir við að honum þyki mikið til koma hvað Akureyringar eru jákvæðir gagnvart fegrun miðbæjarins.

 Góð viðbrögð frá Akureyringum

„Það er ánægjulegt hvað Akureyringar vilja leggja mikið í miðbæinn og hvað hinn almenni íbúi bæjarins er áhugasamur um þetta verkefni. Það hafa margir komið og rætt þetta og lýst ánægju sinni með að það sé verið að auka græna lit Ráðhússtorgsins. Gamlir Akureyringar hafa margir sent mér skilaboð og lýst ánægju sinni með þetta,“ segir Guðmundur.

Hann segir að markaðurinn á Akureyri sé kærkomin viðbót við umsvif fyrirtækisins en í dag er verið að vinna á 15 verknúmerum hjá Akureyrarbæ.

„Þetta er svolítið óvænt viðbót, Akureyringar koma sterkir inn í stað PCC. Okkar stærstu verkefni eru eftir sem áður á Húsavík en þar erum við að vinna við sjúkrahúsið, Dvalarheimilið Hvamm og tengdar byggingar. Svo erum við að vinna mikið á svæðinu fyrir sveitarfélög og opinbera aðila, m.a. ríkiseignir. Ætli við séum ekki að vinna á einhverjum 30 verknúmerum hér á Húsavík við framkvæmdir á lóðum og lóðaumhirðu,“ segir Guðmundur að lokum.

Nýjast