Ráðherrafundur um framtíð innanlandsflugs

Innanríkisráðuneytið í gær.  Mynd:JT
Innanríkisráðuneytið í gær. Mynd:JT

 „Þetta var góður fundur með ráðherranum og jákvæður.  Rætt var nokkuð ítarlega um framhald verkefnisins nú þegar skýrsla liggur fyrir, enda um stórt og mikið hagsmunamál að ræða,“ segir Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri. Hann sat í gær fund með Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra, þar sem skýrsla KPMG um  áhrif flutnings miðstöðvar innanlandsflugs til Keflavíkur frá Reykjavík var rædd.

 

Skýrslan var unnin fyrir sjö sveitarfélög á landsbyggðinni. „Fulltrúar sveitarfélaganna leggja áherslu á að ríkið hafi forgöngu um að þetta mál verði rætt á dýpri og málefnalegri hátt en til þessa. Ég bind vonir við að svo verði eftir fundinn með innanríkisráðherra í gær.“ segir Eiríkur Björn.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast