Þetta var gagnlegur fundur og ég bind vonir við að gengið verði endanlega frá samningi um fjármögnun verksins á næstu dögum, sagði Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri eftir fund með fjármálaráðherra og atvinnuvegaráðherra. Á fundinum var rætt sérstaklega um gerð lánasamnings milli ríkissjóðs og Greiðar leiðar ehf., en Alþingi samþykkti í júní lög til að heimila framkvæmdina. Þrátt fyrir samþykkt laganna hefur enn ekki verið gengið frá samningnum.
Það er eindreginn vilji allra að ljúka málinu sem fyrst, þetta hefur tekið allt of langan tíma. Í dag er verið að tala um að hlutafé Vaðlaheiðarganga ehf verði aukið um 200 milljónir til viðbótar, hlutafé verði því 600 milljónir en ekki 400 milljónir eins og áður var talað um. Þessi fundur með ráðherrunum skilar vonandi þeim árangri að gengið verði frá málinu sem fyrst, við viljum auðvitað byrja á framkvæmdum fyrir alvöru. Þetta þokast allt saman í rétta átt sýnist mér. Undirskriftarpenninn verður vonandi á lofti innan tíðar, sagði Eiríkur Björn bæjarstjóri.
Kristján Þór Júlíusson þingmaður Sjálfstæðisflokksins í NA kjördæmi furðar sig á seinaganginum. Það er með ólíkindum hversu mikill vandræðagangur hefur verið af hálfu ríkisstjórnar við að koma þessu verkefni áfram. Hartnær fjórir mánuðir eru liðnir frá því Alþingi samþykkti endanlega að ráðist skyldi í verkið og þrátt fyrir það hefur ekki tekist að semja við ríkið um lánsfjármögnunina. Verktakinn bíður eðlilega eftir því að lánsfjármögnunin liggi fyrir. Norðanmenn hafa staðið við sitt í þessum efnum og kalla á efndir.
karleskil@vikudagur.is