Skemmtiferðaskipið Queen Elizabeth kom til Akureyrar í morgun, en þetta er í fyrsta sinn sem skipið siglir til Íslands. Það er aðeins þriggja ára gamalt og ber nafn Elísabetar Bretadrottningar. Skipið er 92 þúsund brúttonn og tekur rúmlega 2000 farþega. Queen Elizabeth liggur við Oddeyrarbryggju. Við Tangabryggju liggur svo skemmtiferðaskipið Silver Cloud, sem er um 17.000 brúttótonn og eru farþegarnir um þrjúhundruð talsins.