Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi 26. janúar

Ákveðið hefur verið að prófkjör um val frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar á næsta ári  fari fram þann 26. janúar. Framboðsfrestur rennur út 7. desember.

Frambjóðendur þurfa að skila inn meðmælum 20 flokkbundinna einstaklinga í kjördæminu. Enginn flokksmaður getur staðið að fleiri meðmælum við framboð en sex, segir í tilkynningu frá kjördæmisráði.

Þingmennirnir Kristján Þor Júlíusson og Tryggvi Þór Herbertsson sækjast báðir eftir fyrsta sæti framboðslistans.

Nýjast