Prestur skipaður tímabundið á Möðruvöllum

Séra Sunna Dóra Möller
Séra Sunna Dóra Möller

Séra Sunna Dóra Möller hefur verið sett í embætti sóknarprests í Möðruvallaklausturssókn il tvegja mánaða.

Eins og fram hefur komið í fréttum stóð til að sameina Möðruvalla- og Hríseyjarprestaköll, sameiningin átti að taka gildi um leið og prestur léti af störfum. Það gerðist síðasta haust, þegar séra Solveig Lára Guðmundsdóttir sóknarprestur á Möðruvöllum var valin vígslubiskup á Hólum í Hjaltadal.

Sóknarpresturinn í Hrísey vill ekki flytjast til Möðruvalla og var því ákveðið að fresta sameiningunni. Séra Sunna Dóra, sem býr í Laufási í Grýtubakkahreppi, starfar sem æskulýðsprestur við Akureyrarkirkju í hálfri stöðu.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast