,,Við höfum fengið margar fyrirspurnir frá Akureyri um að koma og halda kynningarfund til að endurvekja starfið í bænum. Við erum að bregðast við því, segir Guðrún Barbara Tryggvadóttir varaforseti Powertalk samtakana á Íslandi. Kynningarfundur samtakanna fer fram í kvöld, mánudag, og verður hann haldinn í Lautinni, húsi Rauða Krossins, kl. 20:00. Um er að ræða þjálfunarsamtök sem æfa fólk í að koma fram og tjá sig í orði.
Akureyringum býðst nú tækifæri til að hefja markvissa þjálfun í ræðumennsku og fundarstjórn, svo fátt eitt sé nefnt. Þetta gagnast t.d einstaklingum í nefndum, foreldrum á foreldrafundum, námsmönnum í flutningi verkefna og öllum öðrum sem vilja koma skoðun sinni á framfæri, segir Guðrún.
Þorði ekki að standa upp
Það sem fékk mig til að fara í Powertalk var að ég var stödd í brúðkaupi hjá æskuvinkonu minni fyrir nokkrum árum og langaði mikið til að standa upp og gera eitthvað skemmtilegt fyrir hana, en ég þorði því ekki, segir Þórdís María Viðarsdóttir félagi í samtökunum.
Þetta hefur alltaf setið í mér og er ég ennþá hundfúl yfir því að hafa verið svona kjarklaus á þessu augnabliki. Ég ákvað að bæta úr því og samtökin hafa hjálpað mér.