Starfsmenn Rafeyrar og Akureyrarbæjar hafa í dag unnið við að moka upp hjartað í Vaðlaheiði, en hjartað er á bólakafi, enda mikill snjór í heiðinni.
Til stendur að hjartað slái á aðventunni, rétt eins og undanfarin ár. Hjartað sem er á stærð við fótboltavöll, sló fyrst við lok árs 2008 og vekur jafnan mikla lukku meðal fólks. Í hjartanu eru 375 perur. Á myndinni má sjá einn af hjartalæknum Rafeyrar við störf í dag.
karleskil@vikudagur.is