Ég er alinn upp við að fá lamb á páskunum og mér finnst það ómissandi, segir Hallgrímur Friðrik Sigurðarson kokkur og einn eigandi 1862 Nordic Bistro á Akureyri. Lambið er klassísk páskasteik. Það er mín tilfinning að Íslendingar haldi í hefðirnar og að páskalambið verði á borðstólnum hjá mörgum fjölskyldum yfir hátíðina. Vikudagur fékk Hallgrím til að koma með uppskrift af úrvals páskalambi í matarkrók vikunnar.
Fyrir fjóra
400 g lambainnralæri
400 g lambarifjur, eða lítill hryggur
2 stk. myndarlegar bökunarkartöflur
50 g gulrætur
50 g rófur
50 g seljurót
2 dl rjómi
1 teningur grænmetiskraftur
(eða kraftmikið soð)
1 teningur lambakraftur
(eða kraftmikið soð)
1 búnt fersk steinselja
½ búnt ferskt blóðberg (timian)
½ búnt fersk mynta
1 grein fersk sædögg (rósamarin)
Gott rauðvín
Sósujafnari (má sleppa)
50 g skallottulaukur
50 g perlulaukur
50 g hvítlaukur
200 g gott hunang
1 dl gott ljóst edik
Góð ólívuolía
Smjörklípa
Salt og pipar
Sítróna
Aðferð
Hitið ofninn í 130°C. Sjóðið niður rjómann örlítið. Skrælið allt grænmeti, kartöflur og lauka líka! Skerið
rótargrænmeti í fallega teninga og geymið afskurðinn í sósugerð. Skerið kartöflur í fjóra stóra teninga, steikið á pönnu með smjöri, salti og pipar. Leggið kartöflurnar í eldfast mót, setjið smá vatn í pönnuna,
lambakraft, sjóðið upp á og hellið yfir kartöflurnar, leggið blandaðar kryddjurtir yfir, bakið í ofni í ca. 45 mín.
Sjóðið upp á ediki, hunangi, smá vatni, salti og blóðbergi og hellið yfir laukana, setjið lok yfir og látið standa. Sigtið þegar sett er upp á disk, bætið skvettu af ólífuolíu og veltið laukunum upp úr saxaðri
steinselju. Höggvið rifjurnar af hryggjarsúlunni, snyrtið rifjurnar til og notið afskurð
einnig í sósugerðina. Ristið grænmetisafskurðinn og kjötafskurðinn í potti ásamt 1 hvítlauksrifi, steinseljustilkunum, pipar. Dassið vel af rauðvíni yfir og sjóðið niður um helming, bætið vatni í og sjóðið aftur rólega niður um helming, sigtið, þykkið eftir smekk, smakkið til með blóðbergi, salti, hunangi, smjörklípu og ljósu
ediki. Sjálfsagt er að bæta rjóma út í sósuna eða kjötkrafti eftir smekk. Steikið allar hliðarnar á kjötvöðvunum
á pönnu með olíu, smá smjörklípu, salti, pipar og sædögginni. Setjið kjötið inn í ofn, ca. 15 mín. Sjóðið rótargrænmetið í þykkum rjómanum og smá grænmetiskrafti þar til meyrt og bætið við saxaðri myntu, smá hunangi, smakkið til með skalli af sítrónu og salti. Hafið gaman af eldamennskunni, setjið allt fallega á disk og njótið páskanna.