Parkinsonfélag Akureyrar með fund um lyfjakostnað

Frá Akureyri/mynd Karl Eskil
Frá Akureyri/mynd Karl Eskil

Parkinsonfélag Akureyrar og nágrennis boðar til fundar um nýjar reglur um greiðslu fyrir lyf  í safnaðarheimili Glerárkirkju á fimmudaginn klukkan 17:00

Með nýjum reglum um greiðsluþátttöku sjúklinga í lyfjakostnaði hækka greiðslur fyrir Parkinsonlyf.  Sumt í framkvæmdinni virðist enn óljóst og hjá flestum hafa margar spurningar vaknað. Stjórn félagsins taldi því nauðsynlegt að bjóða nú þegar upp á fræðslu og umræður um þetta mikla hagsmunamál félaga. Sjúkratryggingar sjá sér ekki fært að senda fulltrúa sinn á fundinn en hafa sent stjórn PAN upplýsingar um hið nýja kerfi. Stjórnin mun eftir því sem kostur er á gera grein fyrir breytingunni. Einnig verða umræður um reynslu og upplýsingar sem fólk hefur þegar aflað.

Aðalfundur PAN 2013 var haldinn  4.maí þar sem m.a. var kosin stjórn.

Sigríður Stefánsdóttir er nýr formaður félagsins. Sími hjá Sigríði er 863 1403 og netfang: sigridurst@simnet.is

Aðrir í stjórn eru:  Atli Már Egilsson, Rósa Eggertsdóttir, Margrét H. Marvinsdóttir og Bergmundur Stefánsson.

Í Parkinsonfélagi Akureyrar og nágrennis eru tæplega 70 félagar úr Eyjafirði, Skagafirði og Þingeyjarsýslu.  Félagið heldur uppi fræðslu og félagsstarfi fyrir þá sem greindir eru með Parkinson, aðstandendur þeirra og aðra sem áhuga hafa og vilja leggja málefninu lið.

Nýir félagar eru velkomnir á fundinn á fimmtudaginn og í félagið. Einnig er velkomið að hafa samband við stjórnarfólk.

 

Nýjast