Parhús byggt á Grenivík

Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps hefur ákveðið að byggt skuli parhús að Höfðagötu 1 og mæta þannig þeirri eftirspurn sem verið hefur á húsnæði á Grenivík. Trégrip hf mun sjá um byggingu hússins og hefur þegar verið gengið frá samningi við fyrirtækið um byggingu parhússins.

Íbúum Grýtubakkahrepps hefur fjölgað nokkuð á undanförnum árum . Um síðustu áramót voru íbúarnir 415, en árið 2000 voru íbúar hreppsins 351.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast