Páll Óskar syrgir Sjallann

Páll Óskar á sviðinu í Sjallanum á gamlárskvöld.
Páll Óskar á sviðinu í Sjallanum á gamlárskvöld.

„Persónulega er það ákaflega sársaukafullt fyrir mig að sjá þennan stað fara undir hamarinn. Ég á ekkert nema góðar minningar frá Sjallanum,“ segir tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson en hann hefur haldið ófá böllin á staðnum síðan árið 1993. Þau verða hins vegar ekki mikið fleiri, þar sem ákveðið hefur verið að rífa Sjallann í sumar og fyrirhugað er að reisa þar hótel.

„Ég mun gráta Sjallann þar sem ég hef átt í ástarsambandi við staðinn í rúm tuttugu ár og er nánast eitt af húsgögnunum. Ég held að þau séu mörg kærustupörin sem hafa hist í Sjallanum í fyrsta sinn.“

Stóru helgarnar missa mátt

Davíð Rúnar Gunnarsson, jafnan kallaður Dabbi Rún, segir lokun Sjallans koma til með að hafa mikil áhrif á skemmtanalíf bæjarins. „Þessar stóru helgar eins og verslunarmannahelgin, páskar og áramótin verða ekkert í líkingu við það sem áður var.  Þessar stærri helgar munu því væntanlega missa eitthvern mátt.“

Undir þessi orð tekur Páll Óskar. "Það er mikilvægt að það verði til staðar einhver viðburðastaður sem tekur við af Sjallanum. Sá staður þyrfti ekki endilega að vera opinn allar helgar. Akureyringar þurfa á slíkum stað að halda þegar stóru helgarnar koma. Hvert eigum við annars að fara? Íþróttahús eru óhentug fyrir dansiböll og það kostar mikla peninga að búa til aðstæður til að halda almennilegt ball í slíku húsnæði.“

Páll Óskar munu halda lokaball í Sjallanum í byrjun mars næstkomandi.

throstur@vikudagur.is

Nánar er rætt við þá Pál Óskar og Dabba Rún í prentútgáfu Vikudags.

 

Nýjast