Miðað við veðurspána er ekki útlit fyrir að það verði mokað á Öxnadalsheiðinni fyrr en á laugardagsmorgun, segir Sigurður Jónsson yfirverkstjóri hjá Vegagerðinni á Akureyri. Vonsku veður og ófærð er víða um land og er m.a. ófært og stórhríð á flestum vegum í kringum Akureyri. Átta flutningabílar sátu fastir í Öxnadalsheiðinni í morgun og að sögn Sigurðar tók hálfan daginn að koma bílunum niður af heiðinni. Það er gífurlega mikill snjór á heiðinni og útlitið ekki gott, segir hann. Hins vegar er fært á milli Akureyrar og Ólafsfjarðar, en varað er við snjóflóðahættu í Ólafsfjarðarmúla. Þá er snjóþekja og skafrenningur frá Akureyri til Dalvíkur.
Veðurspáin næstu daga samkvæmt Veðurstofu Íslands er þannig að búast má við norðaustan 20-25 m/s og slydda eða snjókoma á N-verðu landinu, en sums staðar hvassari á annesjum. Dregur heldur úr vindi í kvöld og nótt. Mun hægari og stöku skúrir eða él syðra, 10-15 þar með kvöldinu. Norðan 18-23 m/s á morgun og víða dálítil snjókoma eða él, en úrkomulítið SV-til. Hiti 0 til 5 stig S-til að deginum, en annars kringum frostmark.