03. febrúar, 2014 - 16:07
Hálka eða snjóþekja er víðast hvar á Norðurlandi og hríðarveður. Ófært og stórhríð er á Þverárfjalli og ófært og óveður er á Öxnadalsheiði, samkvæmt upplýsingum vegagerðarinnar. Meðfylgjandi mynd var tekin af vef Vegagerðarinnar, sem sýnir hvernig ástandið er á Öxnadalsheiði.