Öxnadalsheiðin ófær

Kort Vegagerðarinnar klukkan 14:09
Kort Vegagerðarinnar klukkan 14:09

Stórhríð er á Þverárfjalli og á Siglufjarðarvegi. Ófært og stórhríð er á Öxnadalsheiði,  annars eru hálkublettir og skafrenningur á flestum leiðum, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar.

Veðurspáin fyrir Norðurland eystra:

Norðaustan 10-18 m/s, snjókoma og vægt frost. Norðan 8-13 og slydda eða snjókoma á morgun. Hiti um frostmark.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:
Austlæg átt 5-13 m/s, en hægari A-til á landinu. Dálítil rigning eða slydda SV-lands og él fyrir norðan, annars úrkomulítið. Hiti 0 til 6 stig, mildast syðst, en vægt frost á N- og A-landi.

Á miðvikudag:
Austlæg átt og skúrir eða él á vestanverðu landinu, annars skýjað með köflum og úrkomulítið. Heldur kólnandi.

Á fimmtudag:
Fremur hæg breytileg átt, skýjað með köflum og sums staðar dálítil él. Frost 0 til 7 stig, en 0 til 5 stiga hiti S-lands.

Á föstudag:
Vaxandi suðaustanátt, þykknar upp og fer að rigna SV- og V-lands. Hlýnandi veður.

Á laugardag:
Suðvestanátt og skúrir eða slydduél, en léttir til NA-lands. Hiti 1 til 6 stig.
Spá gerð: 14.04.2013 09:00. Gildir til: 21.04.2013 12:00.

 

Nýjast