Öxnadalsheiðin fær

Á Norðurlandi eystra er víða snjóþekja og skafrenningur. Öxnadalsheiðin var ófær í morgun, en búið er að ryðja veginn. Ófært er í Víkurskarði  en þæfingsfærð er í Ljósavatnsskarði. Hálka eða snjóþekja og éljagagnur er á flestum öðrum leiðum og er verið að hreinsa. Hálka og skafrenningur er á Grenivíkurvegi. Á Akureyri er búið að ryðja allar helstu leiðir. Gunnþór Hákonarson hjá Akureyrarbæ gerir ráð fyrir að lokið verði að hreinsa bæinn fyrir helgi.

Nýjast