Þetta er allt í vinnslu og að sniglast í kerfinu, segir Þórhallur Arnórsson einn af eigendum Sjallans á Akureyri, aðspurður um hvort enn standi til að breyta þessum þekkta skemmtistað í hótel. Eins og fjallað var um fyrr á árinu hafa fjárfestar í Reykjavík gert bindindi kauptilboð í Sjallann með það fyrir augum að breyta staðnum í hótel.
Enn á hins vegar eftir að ná samningum við eigendur húsanna um lóðina sunnan við Sjallann. Ég á frekar von á því að þetta gangi eftir en það er hins vegar óvíst eins og staðan er. Þórhallur segir rekstur Sjallans verða óbreyttan fram til áramóta. Svo veit maður ekkert hvað verður. Það er hins vegar vont að vera í þessari óvissu og ekki gott fyrir reksturinn. Sjallinn er um 2000 fermetrar að stærð en hugmyndin er að bæta einni hæð ofan á húsið. Gangi fyrirliggjandi hugmyndir eftir, er stefnt að því opna hótel í húsnæðinu fyrir sumarið 2013.
throstur@vikudagur.is