Það verður skoðað á næstu dögum hversu margir verða endurráðnir. Ég get ekki sagt neitt til um það á þessari stundu, segir Alfreð Árnason framkvæmdastjóri Sambíóanna. Öllum átján starfsmönnum Sambíóana á Akureyri, Nýja bíó, hefur verið sagt upp störfum. Ástæðan er fyrirhugaðar breytingar á starfseminni. Ekki stendur til að loka bíóinu. Breytingarnar snúa m.a. að vaktarplani en Alfreð vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið.
Óvíst er hversu margir starfsmenn verða ráðnir aftur til starfa. Misjafnt er hvenær uppsagnirnar átján taka gildi, flestir hafa þriggja mánaða uppsagnarfresti.