Þetta lítur ágætlega út hjá flestum verktökum fram yfir áramót. Ég hef ekki heyrt af neinum fyrirhuguðum uppsögnum, þvert á móti var auglýst eftir smiði nýlega og það hefur ekki gerst lengi hér á svæðinu, segir Heimir Kristinsson varaformaður Byggiðn, félagi byggingamanna, um stöðu byggingariðnaðarins á Akureyri.
Við sjáum ekki langt fram í tímann en janúar, febrúar og mars eru oft erfiðustu mánuðirnir. Stóru verkefnin kláruðust að stærstum hluta í haust og það er visst áhyggjuefni að Akureyrarbær virðist ekki vera að fara í stór verkefni á næstunni.
throstur@vikudagur.is