Óviðunandi ástand

Mynd/Karl Eskil.
Mynd/Karl Eskil.

Aðstaða til blóðsýnistöku á Sjúkrahúsinu á Akureyri er ófullnægjandi þar sem húsnæðið er þröngt og búnaður orðinn gamall. „Þetta er algjörlega óviðunandi ástand og hefur verið lengi,“ segir Ólöf Sigurðardóttir yfirlæknir á rannsóknardeild sjúkrahússins. Blóðtökustólar eru úreltir og hefur endurnýjun þeirra dregist vegna fjárskorts. Kaupa þarf þrjá nýja stóla og annan búnað sem kostar um 6-7 milljónir króna. Þá er herbergið gluggalaust þar sem blóðsýnatakan fer fram.

„Þetta er í raun algjör kompa og því ekki hægt að koma fyrir nýjum stólum. Einnig er biðstofan óviðunandi þar sem hún er á ganginum. Það má heldur ekki gleyma því að fólk er oft lasið sem er að koma í blóðsýnistöku og þeim fer fjölgandi sem koma í blóðprufur að heiman þar sem fólk liggur mun skemur inni á sjúkrahúsum í dag. Það þarf nauðsynlega að bæta úr þessu.“

Ekkert gert

„Ég hef starfað sem yfirlæknir frá haustinu 2008 og forveri minn var búinn að reyna að fá þetta lagfært. Það hefur lengi staðið til að fara í úrbætur en það dregst alltaf á langinn,“ segir Ólöf. Undanfarið hefur verið reynt að finna lausn á því að stækka eða flytja aðstöðuna en húsnæðið er notað fyrir aðra þjónustu sem kalla myndi á flutning á starfseminni. Ólöf segir að það muni skýrast á næstu mánuðum hvað verður. „Við þurfum betra húsnæði undir þessa mikilvægu starfsemi og einnig standa vonir til að hægt verði að fjármagna kaup á nýjum stólum á þessu ári eða því næsta.“

throstur@vikudagur.is

 

Nýjast