Slæmt veður er á Norðurlandi. Stórhríð er á milli Blönduóss og Skagastrandar, við utanverðan Skagafjörð og á Tröllaskaga. Stórhríð er einnig á Öxnadalsheiði, Víkurskarði og Tjörnesi og óveður áfram þaðan austur með ströndinni. Ófært er bæði á Hófaskarði og Brekknaheiði.