Óveður á heiðum

Slæmt veður er á Norðurlandi. Stórhríð er á milli Blönduóss og Skagastrandar, við utanverðan Skagafjörð og á Tröllaskaga. Stórhríð er einnig á Öxnadalsheiði, Víkurskarði og Tjörnesi og óveður áfram þaðan austur með ströndinni. Ófært er bæði á Hófaskarði og Brekknaheiði.

Veðurstofan segir að í dag verði norðaustan 10-15 m/s á Norðurlandi eystra og snjókoma eða éljagangur. Frost verður á bilinu 4-10 stig.

Nýjast