Óútskýrðar aukaverkanir eftir hjartaþræðingu

Eyþór Daði Eyþórsson, 12 ára Akureyringur, gekkst undir erfiða hjartaþræðingu á sjúkrahúsi í Boston í Bandaríkjunum fyrir rúmum þremur vikum. Eyþór fékk alvarlegar aukaverkanir eftir aðgerðina sem læknar telja að hafi verið heiftarlegt ofnæmi fyrir svokölluðu skuggaefni. „Þetta lýsti sér þannig að hann fékk væg útbrot sem ágerðust mjög hratt. Á endanum var þetta orðið eins og versti sólbruni niður allan líkamann. Alveg frá enni og niður á tær. Þessu fylgdi mikill hiti í húð, ofsakláði og mikil vanlíðan,“ segir Gréta Björk Eyþórsdóttir móðir Eyþórs.

Læknar ráðþrota

„Læknar geta ekki staðfest með vissu hvað olli þessu. Þeir héldu fyrst að um vírus væri að ræða en töldu síðar að þetta væri ofnæmi. Þetta eru hins vegar bara getgátur og við fáum sennilega aldrei að vita hvað þetta var.“ Gréta segir óvissuna í kringum útbrotin hafa verið afar erfiða. „Við vissum ekki neitt. Eyþóri var haldið í einangrun um tíma og læknar voru alveg ráðþrota. Hver læknirinn á fætur öðrum komu og hittu okkur en enginn þeirra hafði séð svona tilfelli áður. Ef hann þarf að fara í fleiri aðgerðir þá er ljóst að það þarf að fara varlega í alla lyfjagjöf og fylgjast vel með honum og þeim viðbrögðum sem upp kunna að koma. Við verðum að viðurkenna að okkur finnst tilhugsunin óhugnaleg.

Nánar er fjallað um málið í prentútgáfu Vikudags.

throstur@vikudagur.is

Nýjast