Björn Jósef Arnviðarson sýslumaður á Akureyri hefur með bréfi til innanríkisráðherra óskað eftir lausn frá störfum frá og með næstu áramótum. Hann hefur verið sýslumaður í rúmlega 17 ár.
Ég verð 67 ára á næsta ári, en er reyndar skipaður sýslumaður til sjötugs, þannig að ég hefði getað starfað áfram, ef út í það er farið. En mér finnst þetta ágætur tímapunktur og þess vegna hef ég skrifað ráðherra, segir Björn Jósef.
Verklagið á skrifstofum sýslumanna hefur tekið miklum breytingum á þessum nærri tveimur áratugum, verkefnin eru aftur á móti nánast þau sömu. Vélrænar afgreiðslur hafa tekið yfirhöndina, tölvuvinnslan er alltaf að aukast. Á síðustu árum er allt verklag orðið mun skilvirkara og þar með þjónustan í flestum tilvikum. Ég mun þörugglega kveðja þennan vinnustað með vissum trega, en jafnframt tilhlökkun, segir Björn Jósef Arnviðarson sýslumaður á Akureyri.
Nánar er rætt við hann í prentútgáfu Vikudags