Andrea Sigrún Hjálmsdóttir bæjarfulltrúi hjá V-lista á Akureyri lýsti yfir óánægju sinni á bæjarráðsfundi í gærmorgun að herþotur hafi flogið yfir bæinn í vikunni í æfingaskyni en um herþotur frá NATO var að ræða. Andrea segir í bókun að Vinstri hreyfingin grænt framboð harmi þann ófögnuð sem íbúum Akureyrar var boðið upp á miðvikudaginn 15. ágúst sl. þegar herþotur flugu lágflug yfir bæinn sem orsakaði mikið ónæði. Við mótmælum því að flugvöllurinn í bæjarlandinu sé notaður fyrir hernaðarbrölt og minnum á að markmið æfinganna er að þjálfa flugmenn til hernaðaríhlutunnar og jafnvel manndrápa í öðrum löndum," segir ennfremur í bókuninni.
Í orðsendingu til Vikudags frá Samtökum hernaðarandstæðinga á Akureyri er ennfremur lýst yfir óánægju. Þar segir:
Enn koma orustuflugvélar NATO. Þær æfa aðflug og hernaðaraðgerðir á Akureyri og Egilstöðum og nágrenni, nokkra daga í senn, og vekja heimamönnum engan fögnuð. Þetta er þriðja æfingalotan í ár. Nú eru vélarnar frá Portúgal en áður voru hér Þjóðverjar og Bandaríkjamenn. Þetta er enginn þykjustuleikur. NATO er herskátt hernaðarbandalag vestrænna stórvelda sem vilja tryggja forræði sitt í veröldinni, einnig í norðurhöfum.
Samtök hernaðarandstæðinga á Norðurlandi sendu fyrr í sumar frá sér yfirlýsingu þar sem m.a. sagði: Lengi var hernaðarbrölt hérlendis mjög takmarkað við Miðnesheiðina. Hinar reglulegu herflugæfingar yfir Akureyri og Egilsstöðum fela í sér að friðhelgi er rofin og þurrkuð út ákveðin mörk milli hins borgaralega og hins hernaðarlega... Norðurlandsdeild Samtaka hernaðarandstæðinga lýsir yfir að íslensk stjórnvöld skuli segja upp samningi við NATO um loftrýmiseftirlit. Það er ennfremur brýnt hagsmunamál almennings að Ísland að segi sig úr NATO.