Þór/KA sigraði Þrótt Reykjavík 5-0 er liðin áttust við á Þórsvelli í gærkvöld í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu. Katla Rakelardóttir og Thanai Lauren Annis skoruðu tvívegis fyrir Þór/KA í leiknum og Katrín Ásbjörnsdóttir eitt mark.
„Við erum bara rétt að byrja, en fáum ágætis start þannig að mér finnst það lofa góðu um framhaldið,“ segir Snorri Jónsson einn þeirra sem standa að stofnun nýrrar leigubílastöðvar á Akureyri, TaxiAk. Bílstjórarnir eru fimm talsins og mun sá sjötti bætast við um áramót. Bílaflotinn saman stendur af fjórum fólksbílum og einum 8 manna bíl. Þjónustan stendur til boða allan sólarhringinn.
Heimasíða Samherja segir frá því að Umhverfis- og orkustofnun hafi veitt Samherja bráðabirgðaheimild vegna reksturs fiskþurrkunar á Laugum í Reykjadal. Heimildin gildir þar til nýtt starfsleyfi hefur verið gefið út vegna starfseminnar
Karlakór Eyjafjarðar fagnar 30 ára starfsafmæli sínu með stórtónleikum í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri laugardaginn 24. október 2026 klukkan 16. Þar verður sannkölluð tónlistarveisla þar sem kórinn, gestasöngvarar og sjö manna hljómsveit sameinast á sviðinu.
„Staðan er góð hvað varðar framboð lóða á Akureyri og við erum þegar farin að huga að frekari úthlutunum, bæði í Móahverfi og á þeim lóðum sem eftir eru í Holtahverfi. Um 1.200 íbúðir eru nú í byggingu eða á lóðum sem nýlega hefur verið úthlutað, auk um 200 íbúða sem eru í undirbúningi á eldri lóðum, þótt óljóst sé hvenær framkvæmdir hefjast þar,“ segir Sunna Hlín Jóhannesdóttir formaður skipulagsráðs Akureyrarbæjar.
Bleiki dagurinn er í dag en hann er til að sýna samstöðu með krabbameinssjúkum og vekja athygli á baráttunni gegn krabbameinum. Dagurinn er hápunktur árlegs árvekni- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands, Bleiku slaufunnar, sem stendur yfir í október.
Merkum áfanga var náð á dögunum þegar starfsfólk Hölds gróðursetti tré númer 40.000 í árlegri gróðursetningarferð félagsins. Gróðursetning hefur verið fastur liður í starfsemi Hölds í þrjá áratugi og hefur starfsfólk víða um land tekið þátt í verkefninu.
Á aukaaðalfundi Norðurorku sem fram fór í dag var stigið mikilvægt skref í því hvernig Akureyrarbær hyggst sinna hlutverki sínu sem stærsti hluthafi fyrirtækisins. Í fyrsta sinn voru óháðir stjórnarmenn tilnefndir til setu í stjórn félagsins.
Kaffistofan hefur verið valin sigurvegari á Íslandi í European Coffee Trip Awards 2026! Það er okkur mikill heiður að hljóta þessa viðurkenningu, ekki síst þar sem hún byggir á atkvæðum kaffiaðdáenda.
Gjaldskrár Norðurorku munu ekki hækka umfram 2,5% um næstu áramót eftir ákvörðun eigenda fyrirtækisins á aukaaðalfundi á þriðjudagsmorgun. Á þeim fundi var tillögum meirihluta stjórnar hafnað, en þær gerðu ráð fyrir á bilinu 2,5 og upp í 7% hækkun á gjaldskrá veitnanna um næstu áramót. Norðurorka rekur hitaveitu, rafveitu, vatnsveitu ogfráveitu.