Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hófst á mánudaginn með komu flugsveitar ítalska flughersins. Alls munu um 150 liðsmenn ítalska flughersins taka þátt í verkefninu og koma þeir til landsins með sex F-2000 orrustuþotur, B767 eldsneytisvél og C130 birgðaflutningavél. Aðflugsæfingar voru í dag að varaflugvellinum á Akureyri og urðu bæjarbúar sannarlega varir við þotunar, enda mikill hávaði sem fylgir þeim. Meðfylgjandi myndir tók Hörður Geirsson