Orlofs- og desemberuppbætur hækka

Björn Snæbjörnsson/mynd karl eskil
Björn Snæbjörnsson/mynd karl eskil

 „Það sem kemur nú til viðbótar samningnum sem felldur var í janúar er að orlofs- og desemberuppbætur hækka samtals um 32.300 krónur frá gildandi kjarasamningi. Orlofsuppbótin fer úr 28.700 krónum í 39.500 og desemberuppbótin fer úr 52.100 krónum í 73.600. Samningurinn gildir frá 1. febrúar sl., en það verður 14.600 króna eingreiðsla vegna janúarmánaðar miðað við fullt starf og að viðkomandi hafi verið í vinnu 1. febrúar. Við þurfum að tilkynna ríkissáttasemjara um úrslit atkvæðagreiðslu félagsins fyrir klukkan 16 þann 7. mars,“ segir Björn Snæbjörnsson formaður Einingar-Iðju. Félagið hefur skrifað undir nýjan kjarasamning, en um er að ræða viðauka við samninginn sem felldur var fyrr á árinu í atkvæðagreiðslu hjá félaginu. Samningurinn verður kynntur fyrir félagsmönnum í næstu viku.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast